Færsluflokkur: Bloggar

Hvernig er með framtíð-ina hér ???

 

Hæ hæ

var að spá í hvort ég eigi að hætta á blogginu, er alltaf á facebook en veit ekki .....

Er allavegna búin að fá lykilorðið mitt aftur og búin að setja inn óskarsverlaunamyndina um Lífið mitt sem var alveg óvænt sýnt þegar ég helt uppá 40 ára afmælið mitt InLove    

Nú eru voða skemmtilegar breytingar hjá mér - dreif mig í áframhaldandi nám "Heilsunuddari"   skal ég blive  

kveðja


2008 að verða búið ....

Fótb: Liverpool í toppsætið

Hæ hæ

Var ég ekki með bloggsíðu ???

Tími til komin að setja inn nýja færslu.   Í dag er 15.nóvember - laugardagur og ég er að fara ásamt Hildi vinkonu minni á Samstöðutónleika sem bera yfirskriftina " Áfram með lífið"  og eru í laugardalshöllinni  :-)   

Auðvitað er Bubbi minn þar, nema hvað he he

en það eru líka Buff-ið  sem er fantagóð hljómsveit, Sálin, Stuðmenn, Ragnheiður Gröndal og fleiri------ Lofar góðu

Mín er búin að vera í skólanum þessa önn - Ferlegt stuð að vera í Fjölbraut Ármúla svoldið svona flashback til Flensborgaráranna.

Thelma Rós byrjaði líka í 6 ára bekk og finnst rosalega gaman og unglingurinn minn Guðmundur Birkir heldur áfram að stækka og þroskast :-)  og er komin í 9.bekk OMG

Kveð að sinni  með Stóru Knúsi

 

 


Mér finnst þetta eiginlega alveg fáranlegt og lákúrulegt comment hjá fylgdarliði Bjarkar. Má Bubbi ekki hafa sitt álit hvort sungið er gegn Fátækt eða Nátturuvernd á Íslandi....

Bubbi fær Fáranleg ámæli come on
mbl.is Bubbi liggur undir ámælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til Hamingju

Danmörk  Frábær árangur Grin
mbl.is Evrópumeisturum fagnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætla þeir að selja ?

Á að selja liðið einhverjum auðkylfingum frá Dubai ?
mbl.is Undirbúa kauptilboð í Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þetta var eitthvað annað....

Áfram svona eins og í fyrri hálfleik.
mbl.is Guðjón Valur: Batamerki á leik okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Princessuskottið mitt 6.ára

ótrúlegt en satt sex ár síðan ég var á fæðingardeildinni að koma Thelmu Rós í heiminn.   Líður ekkert smá hratt.  Skrítið maður eldist ekkert sjálfur, sér bara á börnunum hvað tíminn líður hratt hehehe. 

Hún er semsagt 1101 eins og BYR bankinn minn 1101 allt útpælt.

Hún var alveg ljómandi glöð í morgun að fara á leikskólann og svo veisla heima hjá pabba hennar og þeim í dag kl fimm.  

Af mér er helst að frétta að eftir að nýja árið gekk í garð lá ég bara eins og múkki með flensu 39 stiga hita frá 1.jan og mætti fyrst í vinnu aftur 7.jan.    Missti meira að segja af BUBBA mínum uhuhuh átti miða á föstudagskvöldinu og úr því að ég komst ekki á þá þá var ég nú slöpp....


Gleðilegt árið.......2008

Óska ykkur öllum Gleðilegt ár elskurnar mínar.   Áramótin sjálf fóru rólega fram en kvöldið á undan var tekið með trompi..... Hrafnhildur vinkona bauð mér með sér til Sigrúnar vinkonu hennar, þar var bæði rautt og hvítt vín með matnum, þegar rauðvínsflaskan var búin ákváðu við að fara í steraka svo sem vodka og sprite, svo capteinmorgan i kók og ýmsir snafsar voru teknir líka bæði hot and sweet og slátruðum einum pela af Tópasi.... já já voða gaman hjá okkur svo um tvöleytið fannst okkur nú að við yrðum að fara að drífa okkur af stað í bæinn tókum leigubíl sem keyrði okkur af stað en þá var bara allt lokað kl eitt...........
 
Veit ekki hvort það var nokkuð alveg runnið af mér í vinnunni kl 9 morgunin eftir, bankinn opin til
til kl 12 en mín stóð sína plikkt.
 
Á gamlárskvöld var spilað party og co og smá trivial  voða gaman.
 
En árið byrjar svo ekki vel hjá mér búin að liggja hálfrænulaus í bólinu nú í 3 daga með yfir 39 stiga hita og maga og höfuverk og slatta af beinverkjum  SEX AND THE CITY  búnar að bjarga MÉR...
 

Enski boltinn ......

rúllar... Arsenal komnir á toppinn eftir daginn.   Sigruðu Everton 4-1 og íslendingaliðið Westham vann Manchester United 2-1 það var svosem ágætt úr því að þeir (MU) unnu okkur 1-0 um daginn..... nú er Siggi bro og Jonni frændi ekki ánægðir með mig uhhhh en við poolarar eigum enn tvo leiki til góða á 3 efstu liðin svo það er algjört MÖST að standa sig vel í þeim.  Vorum að kaupa kornungann 
leikmann 16 ára skoskan strák Alex Cooper, heyrði aðChelsea 
hefði haft augastað á kauða líka.

Jólin

jæja nú er ég loksins komin með bloggsíðu Grin eins og meiri hluti íslensku þjóðarinnar........

Jólin eru búin að vera yndisleg- algjör átveisla dag eftir dag reyndar, hvernig væri svo að koma sér af stað í ræktina eftir áramót 

( á alltaf árskort en er meira  svona styrktaraðili) 

eða bara að drífa sig í göngutúra.....

Á aðfangadagskvöld voru börnin mín tvö Guðmundur Birkir (13 ára) og Thelma

Rós (5 ára) alveg eins og englar hérna hjá mér og mamma og 

pabbi borðuðu líka hjá okkur.   Mikið fjör mikið gaman.  Jóladagur var svo

tekinn með stakri rósemi, lesið, legið og hámað í sig konfekt frá Vísa.

Á annan var svo hið árlega Jólaboð fjölskyldu mömmu þar sem hátt 

í 70 manns, konur og börn voru á staðnum.  Þar tróðu uppi tvær systur 

önnur Steiney á Selló og María Kristín um 4 ára á fiðlu voðalegt Krútt. 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband